Athafnir mannsins hafa áhrif á umhverfi okkar. Á þeim árum sem liðin eru frá því landið tók að byggjast hefur búseta sett mark sitt á gróður landsins. Við landnám var Ísland viði vaxið, milli fjalls og fjöru. Frá landnámi höfum við eiginlega bara skemmt landið og gróður þess með mengun og mannaferðum. Nú hefur komið í ljós, vegna trjábútsfundar við Breiðamerkurjökul, að sennilega hefur Ísland verið töluvert meira skógi vaxið fyrir um 3000 árum síðan en við landnám.
|