Snjóflóð
Snjóflóð myndast þegar snjór sest saman og rennur niður 30° brekkur eða fjallshlíðar. Margir hafa dáið í snjóflóðum og þess vegna hafa verið byggðar snjóflóðavarnir eða garðar á ýmsum stöðum. Líka er hægt að hafa persónulegar forvarnir t.d. snjóflóðapoka, snjóflóðaýla, snjóflóðastangir og skóflur. Gott er að fylgjast með fjallshlíðum allan veturinn þar sem stór snjóflóð hafa orðið. Ástæður fyrir snjóflóði geta verið margar, oftast er það samt veður og mannaferðir sem hafa þau áhrif að snjórinn færist. Snjóflóð eru algengasta dánarorsök manna af náttúruhamförum á Íslandi, oft eru það skíðamenn sem lenda í snjóflóðunum. Stærstu snjóflóð sem hafa orðið á Íslandi gerðust árið 1995 á Súðavík og Flateyri.