Jöklar skríða fram undan þunga sínum og þess vegna getur landslag undir jöklum mótast gífurlega mikið. Ef það kemur bunga í landslagið þá geta myndast sprungur í jökulinn og fyrir neðan bunguna geta þær orðið fleiri og fleiri. Á veturna myndast snjóbrýr og þegar maður gengur á jökla er æskilegt að vera festur í klifurbelti og línur. Það er til þess að ef þú dettur í gegnum snjóbrúnna þá geta klifurfélagar hans sem datt framkvæmt sprungubjörgun. Eða klifrarinn getur klifrað sjálfur upp með sérstakri aðferð sem heitir prússik eða júmmara.