Jökulhlaup eru snögg vatnsflóð frá lónum við jökuljaðar eða jökulbotn sem bræðsluvatn og regn safnast í. Vatn rís þangað til það nær að þrengja sér undir ísstífluna og opna rásir. Í fyrstu eru þær örsmáar en víkka síðan við ísbráðnun vegna núningsvarma því að ísfarg nær ekki að halda á móti þótt vatnsþrýstingur falli. Afleiðingar geta verið að brýr fara, fólk meiðist og jafnvel deyr.