Jöklar þekja um 11 % af heildarfleti Íslands, þeir eru stór partur af sögu landsinns og menningu. Jöklar myndast þegar snjór sest saman og þjappast niður út af þunga sínum og ofankomu sem verður að klaka. Jökull er þykkt íslag sem skríður fram af eigin þyngd, jöklar móta landið. Á mörgum stöðum getur maður séð rákir í fjöllum sem þýðir oft að í dalnum hafi jökull legið. Vatnajökull er stærsti jökullinn á landinu og er hann 8.000 ferkílómetrar . Stærstu jöklar Íslands eru á miðju og sunnan verðu landinu. Það er vegna þess að þar fellur meiri snjór en sá sem nær að bráðna á sumrin.